Fréttir
3.3.2010
Þórsblótið 2010
Þórsblótið 2010
Staðsetning
Skipholti 70 Hús meistaranna
Dagskrá kvöldsins
Kl 19:00 Húsið opnað
Gott að mæta tímanlega og fá sér einn
eða tvo létta á barnum.
Kl 20:00 Kvöldverður
Matseðill kvöldsins
Forréttur
Túnfisk "carpaccio" með ristuðum furuhnetum, permesanosti og salsa
Aðalréttur
Steikarhlaðborð (skorið fyrir inni í sal) Lambalæri að hætti Grikkja, nautalundir
og svínasteik með puru. Meðlæti:
Gratinkartöflur, sykurbrúnaðar kartöflur, ýmiskonar grænmeti s.s. blómkál með
hvítlaukssósu, graskers og sellerírótarblanda, rósarkál, gulrætur, salat og fl.
Eftirréttur
Koníaks-döðlutryffle með sykursoðinni plómu og rjóma.
Með matnum er hægt að kaupa úrvals
vín, bjór eða aðra orkudrykki gegn vægu gjaldi.
Ræðumaður kvöldsins er Dagur B.
Eggertsson
Silfur Egils skemmtir.
Bögglauppboð, Málverkauppboð og
happdrætti yfir 800 % meiri vinningslíkur en í lottóinu.
Uppboðshaldari: Sigurjón
Kristjánsson
Happdrættishaldari Óli Jón
Hertervig
Brjóstahaldari: Brynjar
Bragason
Yfirveislustjóri:
Jóhannes Benediktsson KR - ingur honum til aðstoðar er Þorsteinn Möller Birgisson Siglfirðingur og
athafnamaður
Aðgangseyrir aðeins 5.000 íslenskar krónur greiðist við innganginn, innifalið matur og skemmtun
Formlegri dagskrá lokið um kl 23:30.
Kl. 23:30 Laugavegsganga hefst, stefnan tekin á Vínbarinn, munið réttan klæðnað og
ilmefni.
Blótsnefndin
